Notendaskilmálar korta

Skilmálar vefverslunar Dalvíkurbyggðar v/Bókasafns Dalvíkurbyggðar.

Velkomin í vefverslun Bókasafns Dalvíkurbyggðar sem er í eigu og rekstri Dalvíkurbyggðar kt. 620598-2089, Ráðhúsi, 620 Dalvík.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Bókasafn Dalvíkurbyggðar.
Greiðslur fyrir bókasafnskort fást ekki endurgreidd.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar.
Með því að nota vefverslun Bókasafns Dalvíkurbyggðar samþykkir þú þessa skilmála.

SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:

  • Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
  • Kortin eru sjálfsafgreiðslukort

GJALDSKRÁ
Dalvíkurbyggð gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir Dalvíkurbyggð.
Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is  og hangir uppi á starfsstöðum.

VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Dalvíkurbyggð heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.

GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota kort sem skráð er á annan einstakling hefur Dalvíkurbyggð heimild til þess að loka viðkomandi korti.

PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang.
Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst.
Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun.
Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.